Sýningaríbúðir
Íbúðirnar eru 33 talsins og skiptast í 2ja og 3ja herbergja og eru frá 78 – 108 m²
Íbúðir á efri hæðum eru með björtum og rúmgóðum svölum, á bilinu 12,3–18 m².
Á jarðhæð eru í stað svalna fallegir pallar á sérafnotafleti sem mynda notalegt einkasvæði til útiveru. Ein íbúð á jarðhæð er með svölum til framhliðar ásamt viðbótarpalli á hliðarlóð.
Sýningaríbúð 103
Tveggja herbergja íbúðir
Fermetrafjöldi 2ja herbergja íbúðanna er 78 fermetrar.
Þriggja herbergja íbúðir
Fermetrafjöldi 3ja herbergja íbúðanna er frá 95 upp í 105 fermetrar.
Ef eigendur kjósa að setja upp svalalokanir er það heimilt, að því gefnu að útfærsla, efnisval og frágangur sé í samræmi við samþykkta gerð og útlit hússins. Allar svalalokanir skulu vera samræmdar fyrir húsið í heild, og framkvæmdar í samráði við húsfélag og samkvæmt gildandi reglum og samþykktum.
Íbúðirnar eru útbúnar með gæðainnréttingum sem koma frá Ormsson / HTH. Hitagjafi er gólfhiti. Raftæki í eldhúsi eru frá AEG og blöndunartæki frá Grohe. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæli/frystiskápur fylgir með.
Íbúðirnar eru seldar með flísar á baðherbergjum og parketi á öðrum gólfum. Handklæðaofn á baðherbergi og þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.